Hand- og hugverksfólk er okkur hér á selt.is mjög hugleikið. Það er draumur okkar að síðan verði vettvangur fyrir alla þá mýmörgu landsmenn sem framleiða eitthvað í frítíma sínum og jafnvel þá sem hafa atvinnu af framleiðslu eigin hugverka.
Ef þú ert að hanna eða framleiða vörur og vantar stað til að selja þær ertu á réttum stað. Hafðu samband við okkur og við gerum þér kleift að nota vefinn án þess að greiða söluþóknun.
Með þessu erum við að gefa hönnuðum og handverksfólki tækifæri til að selja vörur sínar beint og án milliliðar sem hirðir helming söluverðmætisins.
Októberfréttabréf Selt.is
Hér fyrir neðan er októberfréttabréf okkar sem var sent út í tölvupósti í dag.
Kæri notandi
Við tökum fagnandi á móti október mánuði á selt.is. Það hefur verið mikið að gerst hjá okkur og góð sala. Okkar helsta vandamál er að fá nógu mikið af áhugaverðum hlutum í sölu, það sem kemur inn selst mjög fljótt. Ef þú ert með áhugaverða vöru viljum við fá þig til liðs við okkur! Ef það er eitthvað sem við getum gert til aðstoðar ekki hika við að hafa samband.
Engin sölugjöld í byrjun október
Við erum í svo góðu skapi að við ætlum að sleppa sölugjöldum næstu vikuna, kynnum svo nýja og einfaldari verðskrá í lok næstu viku. En nú er s.s. ekki eftir neinu að bíða, tilvalið tækifæri setja allt dótið í geymslunni á uppboð eða fyrir fyrirtæki að hreinsa til á lagernum.
Söluaðilar: Hlutir sem þarf að hafa í huga
Það eru margir notendur sem skilja ekkert í því af hverju hlutirnir þeirra eru ekki að seljast og spyrja okkur ráða. Það helsta sem við bendum á er þrennt:
1.Taka góða mynd af hlutnum sem þú ert að selja. Það má eins sleppa því að skrá auglýsinguna eins og að sleppa mynd.
2.Nákvæm lýsing. Lýsing á vöru í fjórum orðum. „Borðstofuborð með sex stólum“ segir ekki neitt. Í hvernig ástandi? Hvað gamalt?
3.Markaðssetning. Sendu auglýsinguna á vini þína á Facebook og í tölvupósti. Því fleiri sem vita af því að þú ert með hlutinn í sölu því meiri líkur á sölu.
Námskeið: Seldu vörurnar þínar á netinu
Við minnum á að Selt.is býður notendum sínum námskeið í sölu á vörum á netinu. Námskeiðið er hugsað fyrir notendur Selt.is og verður farið í notkun vefsins og allir helstu möguleikar kynntir. Farið verður yfir framsetningu á vörum og hvernig hægt er að auka sölu með einföldum en skipulögðum hætti. Einnig verður farið í notkun samfélagsmiðla sem sölutæki (Facebook &Twitter) – hvað virkar og hvað ekki. Skráning er hér: http://www.selt.is/namskeid/
Minnum á hjalp.selt.is eru hjálparsíðurnar okkar. Við erum stöðugt að vinna í því að gera þær betri og þiggjum alla hjálp við það. Sendu okkur línu um hvað vantar þarna inn.
Góða helgi og gleðilegan októbermánuð!
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Selt.is